Tíska og hönnun

Fjallað um Kríu í NY Times

Jóhanna Methúsalemsdóttir hannar skart undir nafninu Kría. Times Magazine fjallaði um nýja línu hennar í vikunni.
Jóhanna Methúsalemsdóttir hannar skart undir nafninu Kría. Times Magazine fjallaði um nýja línu hennar í vikunni. fréttablaðið/stefán
Jóhanna Methúsalemsdóttir, skartgripahönnuður, sendi nýverið frá sér nýja línu sem unnin er úr þorskabeinum. NY Times Magazine fjallaði um línuna á síðum sínum í byrjun vikunnar.

Blaðamaður Times, Sarah Scire, líkir skartinu frá Jóhönnu við slæðu af reyk og segir það fornaldarlegt í einfaldleika sínum. Jóhanna hefur verið búsett í New York frá því hún var táningur og þar rekur hún einnig vinnustofu sína. Í greininni kemur fram að Jóhanna treysti á hjálp vina og vandamanna á Íslandi við beinasöfnunina og segir hún þau dugleg við að senda sér ýmiss konar bein. „Vinnustofan mín er full af beinum og öðrum skringilegum hlutum, sem gerir mig mjög hamingjusama," var haft eftir Jóhönnu sem handgerir hvern hlut í línunni.

Blaðamaðurinn fjallar einnig um svokallað „lookbook", sem eru eins konar kynningarmyndir fyrir línuna. Þar bregður dóttir Jóhönnu, Indía Salvör Menuez, sér í hlutverk fyrirsætu og gerir það vel. „Myndirnar eiga að minna á gamlar ljósmyndir af sjómönnum og indíánum og vera mjög náttúrulegar," sagði Jóhanna að lokum um myndirnar. -sm






Fleiri fréttir

Sjá meira


×