Lífið

Ben Stiller í Borgarnesi um helgina

Ben Stiller.
Ben Stiller.
Tökur á myndinni The Secret Life of Walter Mitty hér á landi hófust í gær. Ben Stiller, sem leikstýrir myndinni ásamt því að fara með aðalhlutverkið, var með lið sitt á Hellisheiðinni í gær.

Hann mun gera víðreist í framhaldinu, meðal annars um Vesturland. Í héraðsblaðinu Skessuhorni segir að Geirabakarí í Borgarnesi verði lokað frá morgundeginum til og með þriðjudags vegna upptöku á atriði á pitsustað.

Borgarnes.Mynd/GVA
Þá herma fréttir að upptökur muni einnig fara fram á Borgarfjarðarbrúnni og að tökuliðið hafi leigt húsnæði menntaskólans í bænum meðan á tökum stendur.


Tengdar fréttir

Stiller á "Seyðisfojodi"

Ben Stiller var á seyðisfirði, ef marka má innlegg hans á myndavefinn Instagram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×