Viðskipti innlent

Svartháfsmál Lárusar og Guð­mundar þing­fest fyrir dómi í dag

Lárus Welding.
Lárus Welding.

Mál sérstaks saksóknara gegn fyrrverandi forstjóra Glitnis, Lárusi Welding, og Guðmundi Hjaltasyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs Glitnis, verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur eftir hádegi í dag. Þeir hafa verið ákærðir fyrir stórfelld umboðssvik.

Ákæran kemur til vegna rannsóknar saksóknara á fléttu sem tengist félaginu Svartháfi og Vafning, en lánið rann í raun til Milestone, það félag var í eigu bræðranna Karls og Steingríms Wernerssona.

Báðir sátu Lárus og Guðmundur í áhættunefnd Glitnis og eru sagðir hafa misnotað stöðu sína og stefnt bankanum í stórfellda hættu með því að lána Milestone tíu milljarða króna í febrúar 2008, rúmu hálfu ári áður en bankinn féll.

Helmingur lánsins var veitt til Vafnings án trygginga. Félagið átti ekkert nema hálfa milljón í hlutafé. Þá fékk Svartháfur hinn helming tíu milljarðanna frá bankanum skömmu síðar til þess að greiða niður lán Milestones til bankans, í gegnum Vafning.

Ástæðan fyrir láninu var fyrst og fremst að komast hjá veðkalli. Ef lánið hefði ekki verið veitt hefði bandaríski bankinn, Morgan Stanley, tekið bréf bankans yfir og í kjölfarið hefðu bréfin farið á markað, og líklega afhjúpað viðkvæma stöðu bankans í kjölfarið.

Til þess að komast hjá því að veita Milestone lánið var búið svo um hnútana að félagið Vafningur ehf., fengi lánið.

Í ákærunni segir að látið hafi verið líta svo út að Vafningur hefði tekið lánið en ekki Milestone með því að dagsetja lánasamnings á milli Glitnis og Vafnings. Bankinn mátti ekki lána Milestone meira fé, en þá þegar skuldaði Milestone Glitni rúma 32,4 milljarða. Með þessari lánveitingu fór skuld Milestone upp í 42,4 milljarða.

Í ákæruskjalinu segir ennfremur að lánveitingin hafi orðið til þess að bankinn féll svo að lokum í október 2008, með alvarlegum afleiðingum fyrir kröfuhafa, ríkissjóð og almenning.

Brotið varðar sex ára fangelsi, verði þeir fundnir sekir. Þetta er fyrsta málið þar sem stjórnendur stóru viðskiptabankanna eru ákærðir, og réttað yfir, eftir hrun.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×