Fótbolti

Birkir Már: Flott að komast upp fyrir Kýpur í riðlinum

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Þetta var mjög kærkomið og mikill léttir að ná að landa einum sigri loksins," sagði Birkir Már Sævarsson, leikmaður íslenska landsliðsins, eftir sigurinn í kvöld.

„Mér fannst við miklu betri aðilinn í fyrri hálfleik, en í þeim síðari þá ná þeir að pressa heldur mikið í bakið á okkur sem var hættulegt á köflum".

„En sem betur fer náðum við að halda hreinu og mér fannst þetta sanngjarn sigur þegar upp er staðið".

„Þetta er virkilega mikilvægur sigur fyrir liðið og gott að komast upp fyrir Kýpverja og lenda ekki í neðsta sæti í riðlinum".




Fleiri fréttir

Sjá meira


×