Íslenski boltinn

Pepsimörkin: Andskotans kona ertu

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar


Jóhann Helgi Hannesson leikmaður Þórs var með sterkan norðlenskar áherslur í orðavali sínu þegar hann lét Bjarna Guðjónsson heyra það í Frostaskjólinu í gær í 3-1 sigri KR gegn nýliðinum frá Akureyri. Jóhann hefur eflaust ekki veitt því athygli að fyrir utan völlinn voru hljóðnemar fyrir útsendingu Stöðvar 2 sport og það fór ekkert á milli mála að Jóhann var ósáttur við fyrirliða KR.

Atvikið var til umræðu í Pepsimörkunum á Stöð 2 sport í gær þar sem að Hörður Magnússon, Hjörvar Hafliðason og Magnús Gylfason fóru yfir stöðuna.

„Þetta átti alls ekki við og mér fannst þetta gróft," sagði Magnús en Hjörvar taldi að hinn þaulreyndi atvinnumaður Bjarni væri vanur því að fá svona orðbragð yfir sig.




Tengdar fréttir

Pepsimörkin: Tilþrif og mörk úr 4. umferð skreytt með dúndur tónlist

Að venju var boðið upp á öll mörkin og tilþrifin úr leikjum Pepsideildar karla í fótbolta í gær í samantektarþætti Stöðvar 2 sport. Þar fóru Hörður Magnússon, Hjörvar Hafliðason og Magnús Gylfason yfir gang mála í fjórðu umferð og hér má sjá samantektina – þar sem tónlist frá Rage Against the Machine réð ríkjum en lagið heitir Renegades Of Funk.

Rúnar: Gaman að mæta Þórsurum

Rúnar Kristinsson var hæstánægður með sína menn eftir 3-1 sigur á Þór á heimavelli í Pepsi-deild karla í kvöld.

Andri: Hefðum getað tekið þrjú stig

"Það er mjög ásættanlegt að fá stig hér. Það var mikið vinnuframlag hjá mínu liði og við gáfum þeim engan frið. FH klárlega betra fótboltaliðið en ég skal ekkert segja um hvort þeirra leikur hafi verið áhrifaríkari. Eftir á að hyggja hefði ég verið sáttur við þrjú stig miðað við færin sem við sköpuðum," sagði Andri Marteinsson, þjálfari Víkings, eftir jafnteflið við FH í kvöld.

Heimir: Hugarfarið er vandamál liðsins

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, var þungur á brún eftir jafnteflið gegn Víkingi í dag. Heimir kom ekki út úr búningsklefa FH fyrr en um hálftíma eftir leik þegar flestir fjölmiðlar voru farnir heim á leið.

Umfjöllun: Latir FH-ingar heppnir að fá stig gegn Víkingi

Ef FH ætlar að spila í sumar eins og liðið gerði í kvöld gegn Víkingi þá á liðið enga möguleika á titlinum. Meistaraefnin í Firðinum mættu hrokafull til leiks gegn Víkingi og héldu að hægt væri að fá þrjú stig gegn þeim án fyrirhafnar. Það gekk svo sannarlega ekki eftir því baráttuglaðir Víkingar voru hreinlega heppnir að taka ekki öll stigin í Krikanum í kvöld.

Bjarni: Áttum von á mótspyrnunni

Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR, skoraði eitt mark sinna manna gegn Þór á KR-vellinum í kvöld. Niðurstaðan var 3-1 sigur.

Ólafur Örn: Vantar herslumuninn

Ólafur Örn Bjarnason þjálfari Grindavíkur getur verið sáttur við margt í leik sinna manna gegn Keflavík í kvöld þrátt fyrir 2-0 tap.

Helgi Sig: Við hefðum átt að vinna

Hinn 37 ára gamli Helgi Sigurðsson var magnaður í liði Víkings í kvöld. Hann hljóp endalaust og sífellt að gera varnarmönnum FH lífið leitt með dugnaði sínum.

Vandræði hjá meistaraefnunum í FH - myndir

FH-ingar náðu bara 1-1 jafntefli á heimavelli á móti nýliðum Víkinga í Pepsi-deild karla í gærkvöldi og hafa því tapað 7 stigum í fyrstu fjórum umferðunum.

Umfjöllun: Góð byrjun dugði KR

KR vann í kvöld 3-1 sigur á Þór á heimavelli sínum í vesturbænum og er fyrir vikið með tveggja stiga forystu á toppi Pepsi-deildar karla eftir fjórar umferðir.

KR-ingar í fínum málum á toppnum - myndir

KR-ingar eru á skriði í Pepsi-deild karla eftir 3-1 sigur á Þór á KR-vellinum í gær. KR-ingar eru þar með tveggja stiga forskot á toppnum og hafa náð að 10 af 12 mögulegum stigum í fyrstu fjórum leikjunum.

Hannes: Frammistaðan okkur ekki til framdráttar

"Þetta var alls ekki ásættanlegt. Okkar frammistaða í dag er okkur ekki til framdráttar. Það er alveg ljóst," sagði Hannes Þorsteinn Sigurðsson, markaskorari FH-inga, eftir jafnteflið við Víking í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×