Viðbótarorkan komi úr Búðarhálsvirkjun 22. janúar 2010 06:00 í Straumsvík Verkfræðifyrirtækið HRV og fleiri eru sögð gegna lykilhlutverki við stækkun álversins í Straumsvík. Fréttablaðið/GVA
Tekin hefur verið ákvörðun um að hefja fyrri hluta endurbóta á álveri Rio Tinto Alcan í Straumsvík með það fyrir augum að nýta megi meira rafmagn en nú er gert. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á næstu vikum. Rannveig Rist, forstjóri Alcan á Íslandi, segir viðræður við Landsvirkjun um endurnýjun á raforkusamningi verksmiðjunnar, auk viðbótarorku fyrir straumhækkunarverkefnið, á lokastigi. „Við frestuðum þessum fyrirætlunum á meðan verið var að ljúka viðræðum við stjórnvöld um skattamál. Nú er búið að finna þeim málum farveg og við því að fara af stað með fyrsta áfangann af þremur í straumhækkunarverkefninu,“ segir Rannveig. Þá ræður för hversu langt samningar um viðbótarorku eru komnir. „Viðbótarorkan á að koma úr Búðarhálsvirkjun. Landsvirkjun vinnur að fjármögnun og málið þar statt.“ Rannveig segir að til að nýta tímann hafi verið ákveðið að skipta verkefninu upp meðan beðið væri eftir því að mál skýrðust hjá Landsvirkjun varðandi fjármögnun. Þegar Landsvirkjun getur svo afhent meiri orku og búið er að gera nauðsynlegar endurbætur í álverinu þá er gert ráð fyrir að framleiðsla þess aukist um sem nemur 40 þúsund tonnum á ári, fari í 218 þúsund tonn. „Áfanginn sem við förum í núna er undirbúningur og fyrsti hluti fjárfestingarinnar.“ Breytingarnar nú felast í endurnýjun á rafbúnaði í aðveitustöð álversins, en um leið segir Rannveig að rekstraröryggi álversins aukist. Sá hluti stækkunarinnar sem ráðist er í núna felur í sér fjárfestingu fyrir rúmlega 100 milljónir Bandaríkjadala, eða tæpa 12,8 milljarða króna og vegna hennar verða til um 100 störf í álverum fram á mitt næsta ár. Þá segir Rannveig að í fjárfestingunni endurspeglist vilji Rio Tinto Alcan til að efla starfsemina í Straumsvík og tiltrú fyrirtækisins á starfsemina hér. „Það eru ekki margar fjárfestingar í gangi í heiminum í dag þannig að þetta er ákveðin viðurkenning á því sem við höfum verið að gera og stöndum fyrir.“ Straumhækkunarverkefni Alcan á Íslandi felur alls í sér fjárfestingu fyrir um 330 milljónir dala (eða 42,2 milljarða króna) og er gert ráð fyrir að um þriðjungur fjárhæðarinnar renni til íslenskra aðila. Rannveig áréttar að þær endurbætur og væntanleg framleiðsluaukning í álverinu séu ekki tengdar stækkun álversins sem blásin var af í íbúakosningu í Hafnarfirði. olikr@frettabladid.is
Mest lesið Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Innlent Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Innlent Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Innlent Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Innlent „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Innlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Fleiri fréttir „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Hundrað skjálfta hrina við Eldey Háskaleg eftirför, ofbeldisfullur strætófarþegi og áhyggjufullur leigusali Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Sjá meira