Viðskipti innlent

Eyjafjallajökull: Ferðamönnum fækkaði um tæp 17% í apríl

Samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu sem birtar voru í gærdag þá fjölgaði brottförum frá sama tímabili í fyrra um 13,5% framan af mánuðinum, þ.e. á tímabilinu 1.-13. apríl, en fækkaði svo þannig um 40,7% á tímabilinu 14.- 30. apríl.

Erlendir ferðamenn voru 16,9% færri nú í apríl en í apríl á síðasta ári. Þannig fóru rúmlega 23 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð í mánuðinum samanborið við tæp 28 þúsund á sama tíma í fyrra.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þessar tölur koma ekki á óvart enda er ljóst að þessa fækkun megi rekja til eldgossins í Eyjafjallajökli sem tafið hefur verulega fyrir flugsamgöngum, þá bæði innanlands sem og erlendis.

Samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu sem birtar voru í gærdag þá fjölgaði brottförum frá sama tímabili í fyrra um 13,5% framan af mánuðinum, þ.e. á tímabilinu 1.-13. apríl, en fækkaði svo þannig um 40,7% á tímabilinu 14.- 30. apríl.

Að viðbættum eitt þúsund brottförum erlendra gesta í millilandaflugi um Akureyrarflugvöll er fækkunin þó aðeins minni á þessu síðara tímabili, eða sem nemur 34,3%.

Allt frá því að talningar Ferðamálastofu hófust hefur erlendum ferðamönnum fjölgað verulega á milli mars og apríl en vegna áhrifa eldgossins varð þróunin að þessu sinni önnur. Þannig fjölgaði erlendum ferðamönnum að meðaltali um 18,5% á milli þessara tveggja mánaða á árunum 2002-2009 en að þessu sinni fækkaði þeim um 11,0%. Talningar Ferðamálastofu ná yfir allar brottfarir gesta frá landinu um Leifsstöð.

Áhrif eldgossins eru einnig augljós þegar litið er á brottfarir Íslendinga um Leifstöð í apríl. Þannig fóru rúmlega 19 þúsund Íslendingar erlendis í mánuðinum en á sama tíma í fyrra voru þeir rúmlega 24 þúsund. Jafngildir þetta fækkun upp á 21,6% á tímabilinu.

Þess má geta að fimm mánuðinu þar á undan, þ.e. frá nóvember 2009 til og með mars 2010, hafði brottförum Íslendinga fjölgað stöðugt miðað við sama tímabil árið á undan. Höfðu rúm 13,9% fleiri Íslendingar farið erlendis á fyrstu þremur mánuðum þessa árs samanborið við sama tímabil í fyrra.

Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira

×