Lífið

Skýrði barnið í höfuðið á Lady Gaga

Nýbakaður faðir skírði dóttur sína í höfuðið á söngkonunni.
Nýbakaður faðir skírði dóttur sína í höfuðið á söngkonunni.

Söngkonan Lady Gaga hefur nú fengið sína fyrstu nöfnu. Það var faðirinn, Ian Clark, sem skírði nýfædda dóttir sína í höfuðið á söngkonunni á dögunum eftir að hafa grínast með það við fjögurra ára gamla stjúpdóttur sína.

Þrátt fyrir að móðir barnsins hafi harðneitað því fór Ian með nafnið alla leið og fékk dóttirin nafnið Meggie Maisie Lady Gaga.

„Ég trúi því ekki að hann hafi gert þetta. Konurnar sem sáu um skráninguna spurðu hann þrisvar sinnum hvort það væri eitthvað sem hann vildi breyta við skráninguna," sagði móðirin.

Ian sagði að þegar hann hafi spurt hvað barnið ætti að heita hafi Maddie litla stungið upp á því að skíra í höfuðið á uppáhaldssöngkonu sinni. Hann segir að honum hafi þótt hugmyndin ágæt.

„Ég er viss um að henni á eftir að finnast þetta fyndið þegar hún verður eldri," sagði Ian.

Þess má geta að fjölskyldan er strax farin að gera ráðstafanir til að breyta nafni dótturinnar þegar hún verður 18 ára.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×