Stóraukin sala á lambakjöti 14. júlí 2010 03:00 Sigurður Eyþórsson.
Lambakjötssala í júní var um það bil 35% meiri en í fyrra, 555 tonn seldust í ár en 410 tonn í sama mánuði í fyrra. Frá öðrum fjórðungi síðasta árs er söluaukningin 7,8%. Þetta eru heildsölutölur, það er að segja viðskipti verslana, kjötvinnslufyrirtækja og veitingastaða við sína birgja. „Annars vegar er verðið lækkandi og mikið um tilboð. Hins vegar var þetta gríðarlega hlýr mánuður. Þá grillar fólk mikið og það hjálpar okkur," segir Sigurður Eyþórsson, framkvæmdastjóri Landssamtaka sauðfjárbænda, um ástæður þessarar auknu sölu. Hann segir kannanir benda til þess að Íslendingar kjósi helst af öllu lambakjöt þegar þeir ætla að grilla. Sigurður segist telja ólíklegt að svo mikil söluaukning verði einnig í júlí. Hann segir að sauðfjárbændur séu ánægðir með að salan sé að taka við sér á ný. Árið 2008 var besta ár í sölu lambakjöts hér á landi frá 1993. Ótti við kreppuna kom meðal annars fram í því að fólk fyllti frystikistur af lambakjöti haustið 2008. Í samræmi við þá birgðasöfnun heimilanna dróst öll kjötsala saman 2009, auk þess sem Sigurður segir að þá hafi kaupmáttarskerðingin eftir hrunið verið farin að bíta. „Núna virðist markaðurinn vera að snúast aftur og við erum kátir með það," segir Sigurður Eyþórsson. Útflutningur hefur einnig aukist, var 170 tonn í júní, sem er 182% aukning frá því í fyrra. Fyrir vikið eru mun minni birgðir í landinu en áður.
Mest lesið Var vöruð við dögum áður en henni var rænt Erlent Ætla að fara fram á frávísun málsins Innlent Mesta kvikusöfnun til þessa Innlent Engin egg í Skaftahlíðina Innlent „Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Innlent Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Innlent „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Innlent Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Innlent Maðurinn er kominn í leitirnar Innlent Vill ljúka stjórnarmyndun í Færeyjum í næstu viku Erlent Fleiri fréttir Veiðimenn klæði sig í föðurlandið á morgun Mesta kvikusöfnun til þessa Maðurinn er kominn í leitirnar „Ég stend ekki hér út af minni fortíð“ Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ætla að fara fram á frávísun málsins Handteknir eftir vopnaða líkamsárás Engin egg í Skaftahlíðina Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Logi hleypur í skarðið fyrir Jóhann Pál Guðmundur Ingi leiðir Flokk fólksins Bein útsending: Flokkur fólksins kynnir efstu fimm Vilja 140 milljarða skattalækkun og sölu ríkiseigna fyrir 680 milljarða Fyrsti mótframbjóðandi formannsins rekinn af skrifstofunni Edition-málið komið aftur til saksóknara og farbann framlengt Skúli Tómas: Áfall að ákært sé í einu máli Þremur vísað úr landi eftir að hafa stolið fatnaði „Þetta er í fyrsta sinn á ævinni sem mér er stefnt fyrir eitthvað“ Engin þjóðarsátt án skýrra aðgerða „Við krossum bara fingur“ „Kostuðu páskaeggin sjö hundruð þúsund krónur?!“ Útlit fyrir að rætist úr páskaveðrinu og ASÍ kallar eftir frumkvæði frá ríkisstjórninni Skúli Tómas ákærður fyrir manndráp en fimm mál felld niður Ekki sannfærð um aðild en kallar eftir kjölfestu í umræðu Gripinn með fíkniefni í bíl um borð í Norrænu Í meðferð eftir fjárdrátt hjá Viðreisn Hellisheiði opin en Þrengsli enn lokuð Færri strætóferðir um páskana Fær vægari dóm en greiðir hærri miskabætur Hellisheiðin opin að nýju og snjókoma í borginni Sjá meira