Viðskipti erlent

Spáir 17,8% verðbólgu í desember

Að mati greiningar Glitnis mun vísitala neysluverðs (VNV) hækka um 1,2% í desember. Gangi spáin eftir mun ársverðbólga aukast úr 17,2% í 17,8%.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Að þessu sinni gerir greiningin ráð fyrir að þeir vöruflokkar sem að mestu leyti eru innfluttir vegi þyngst til hækkunar, en það eru t.d. föt og skór, húsgögn og heimilisbúnaður og innflutt matvæli.

Þó mun verðhækkun á matvælum verða minni en ella þar sem þær vörur sem mestan veltuhraða hafa í dagvöruverslunum hafa þegar tekið að lækka eftir styrkingu krónu í kjölfar enduropnunar millibankamarkaðar. Veruleg lækkun eldsneytis undanfarinn mánuð vegur á móti til lækkunar vísitölunnar, auk þess sem lítil hækkun húsnæðisliðar og þjónustu ýmis konar mun að öllum líkindum draga úr heildarhækkun VNV að þessu sinni.

„Verðbólga er nú við það að ná hámarki að mati okkar. Teljum við að ársverðbólgan muni fara hæst í 18% á fyrstu mánuðum næsta árs," segir í Morgunkorninu.







Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×