Viðskipti innlent

Umbreytist í hestamann eftir klukkan sex

hreiðar árni magnússon Hárgreiðslu­maðurinn hefur lengi verið forfallinn hestamaður en ætlar að munda golfkylfurnar í sumar eftir að hafa gert hlé á þeirri iðju undanfarin ár.
hreiðar árni magnússon Hárgreiðslu­maðurinn hefur lengi verið forfallinn hestamaður en ætlar að munda golfkylfurnar í sumar eftir að hafa gert hlé á þeirri iðju undanfarin ár.

„Ég ætlaði að verða bóndi en endaði sem hárgreiðslumaður,“ segir Hreiðar Árni Magnússon, framkvæmdastjóri og einn eigandi hárgreiðslustofanna Salon VEH í Reykjavík og Loft Salon, sem er í hjarta Kaupmannahafnar. Hreiðar ferðast mikið til útlanda vegna vinnunnar en þegar hann er á landinu nýtur hann þess að vera úti í íslenskri náttúru.

„Ég fer upp í hesthús á hverjum degi eftir vinnu þegar ég get og einnig um helgar,“ segir hann. Eftir sex á daginn skiptir Hreiðar algjörlega um gír; fer úr hlutverki hárgreiðslumannsins á mölinni og umbreytist í hestamann. „Hestamennskunni fylgir mikil líkamleg og andleg vellíðan,“ segir hann og bætir við að lífinu eftir vinnu hjá sér sé best lýst sem lífinu í hesthúsinu. Dætur hans sem eru fimm og níu ára fara báðar oft með pabba sínum til Hafnarfjarðar í hesthúsið. „Fyrir mér er hestamennskan lífsstíll sem hefur fylgt mér alla tíð. Sem krakki var ég níu sumur í sveit á Neðri Tungu í Örlygshöfn hjá afa mínum og ömmu við Patreksfjörð. Tvö sumur var ég á bænum Austurey við Apavatn og eitt sumar á bænum Stóru Giljá í Húnavatnssýslu og alltaf í kringum hesta,“ segir Hreiðar, sem augljóslega er vel kunnur sveitastörfum.

Yfir sumartímann fer Hreiðar bæði styttri og lengri hestaferðir. Hann fer mikið austur fyrir fjall þar sem stutt er upp á hálendið. Helstu hestaleiðirnar í huga Hreiðars eru leiðir að Kringlumýri á Lyngdalsheiði, Löngufjörur á Snæfellsnesi og Mýrdalssandur. Þessa staði þræðir hann á hestbaki með vinum sínum, en birgðirnar eru reyndar keyrðar á áfangastaðinn í lengri ferðum.

Hreiðar er lítið fyrir dútl og segist yfirleitt taka hlutina alla leið. „Golfið hefur legið í dvala undanfarin ár en með vorinu er ætlunin að byrja aftur í því,“ nefnir hann og bætir við að hann verði líka að nefna enn annað áhugamál sitt sem er skotveiðin. „Fyrri part hausts fer ég vanalega á gæs og seinni part hausts fer ég á rjúpu. Svo er það fótboltinn,“ segir Hreiðar glettinn. „En nýlega var ég staddur í London og notaði þá tækifærið og sá Arsenal spila á heimavelli, sem var frábær uppplifun,“ segir hann að lokum.- vg





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×