Viðskipti innlent

Aukning loðnukvóta skilar sex milljörðum

Björgvin Guðmundsson skrifar
Strangt gæðaeftirlit við hrognavinnslu Kawa Morita frá Japan fylgist vel með framleiðslunni í Vinnslustöðinni þar sem Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson ræður ríkjum. Samþykki Morita að kaupa hrognin sem eru framleidd er gengið frá pökkun og hrognin sett í frystigeymslur. Sigurgeir segir að þá fari af stað samningaviðræður um verð.Fréttablaðið/Óskar P. Friðriksson
Strangt gæðaeftirlit við hrognavinnslu Kawa Morita frá Japan fylgist vel með framleiðslunni í Vinnslustöðinni þar sem Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson ræður ríkjum. Samþykki Morita að kaupa hrognin sem eru framleidd er gengið frá pökkun og hrognin sett í frystigeymslur. Sigurgeir segir að þá fari af stað samningaviðræður um verð.Fréttablaðið/Óskar P. Friðriksson

„Helstu markaðir fyrir þessar loðnuafurðir eru í Japan og Rússlandi. Eftirspurnin er til staðar en verðið fer eftir markaðsaðstæðum hverju sinni,“ segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, sem flestir þekkja sem Binna í Vinnslustöðinni.

Loðnukvótinn var aukinn um 50 þúsund tonn í fyrradag og gladdi það mjög stjórnendur þeirra útgerða sem gera út á loðnu. Er það viðbót við þau 100 þúsund tonn sem þegar var búið að heimila að veiða af loðnunni.

Sigurgeir Brynjar segir að langmesti hluti kvótans fari í loðnuhrognaframleiðslu hjá Vinnslustöðinni. Fyrir það fæst hærra verð en ef loðnan er bara sett í bræðslu.

„Á einfaldan hátt má segja að hver loðna er skorin í tætlur. Með sérstakri aðferð eru loðnuhrognin tekin úr henni. Þetta eykur verðmætin sem við erum að skapa. Það er samt erfitt að segja til um hversu mikið við fáum fyrir þetta,“ segir Brynjar.

Valdimar Halldórsson, sérfræðingur hjá Greiningu Glitnis, segir að í fyrra hafi veiðst 308 þúsund tonn af loðnu. Útflutningsverðmæti þess afla var um 9,5 milljarðar króna. Ef skipting á milli manneldis- og mjölvinnslu verður lík og í fyrra, og í ljósi þess að afurðaverð á heimsmörkuðum er hátt og gengi krónunnar orðið hagstæðara fyrir útflytjendur, gæti verðmæti 50 þúsund tonna loðnukvótaaukningar nálgast tvo milljarða króna að mati Valdimars.

Sigurgeir segir að tveir gæðaeftirlitsmenn frá japönskum fyrirtækjum hafi verið að bíða eftir loðnunni í Vestmannaeyjum frá því í janúar. Nú fylgist þeir vel með framleiðslunni og gæði afurða sem send eru til Japan. Kröfurnar eru miklar enda loðnuhrogn dýr og sérstök vara. Sáralítið sé veitt af loðnu í heiminum nema við Íslandsstrendur.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×