Viðskipti innlent

Stórfelld fækkun fiskvinnslufólks

Ingimar Karl Helgason skrifar
Fiskvinnslufólki hefur fækkað gríðarlega á einum áratug. Konum hefur fækkað töluvert meira en körlum.
Fiskvinnslufólki hefur fækkað gríðarlega á einum áratug. Konum hefur fækkað töluvert meira en körlum.

„Það eru fyrst og fremst tæknibreytingar í vinnslunni sem skýra þetta,“ segir Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva.

Samkvæmt tölum Hagstofunnar hefur fiskvinnslufólki fækkað um fimm þúsund frá árinu 1997. Þá voru starfsmenn í fiskvinnslunni tæplega átta þúsund, en eru nú um þrjú þúsund.

Arnar Sigurmundsson segir að tæknibreytingar og aukin sjálfvirkni nái til allra greina vinnslunnar. „Þetta á við í frystingunni, rækjunni, mjöli og lýsi. Alls staðar hefur fólki fækkað.“

„En það er fleira sem skýrir þessa miklu fækkun fiskvinnslufólks undanfarin tíu til fimmtán ár. Vinnsla á sjó hefur aukist, fyrirtækjum hefur líka fækkað, auk þess sem það hefur aukist að flogið sé með aflann óunninn úr landi.“

Arnar Sigurmundsson bendir líka á að það sem af er fiskveiðiárinu hafi hundruð starfa tapast í landvinnslunni. „Þetta eru hátt í 400 störf sem þegar hafa tapast. Samvæmt mínum upplýsingum hafa starfað þarna um fjögur þúsund manns, svo þetta er eitthvað um einn af hverjum tíu. Ég nefndi það á síðasta ársfundi samtakanna að hátt í 600 störf kynnu að tapast þegar allt væri komið fram.“

Sé miðað við nýjustu tölur Hagstofunnar um fjölda starfsmanna fiskvinnslunnar má sjá að ríflega þrettán prósent hafa misst vinnuna vegna kvótaniðurskurðarins.

Sumarleyfislokanir verði væntanlega mun lengri en áður. „Ætli það megi ekki gera ráð fyrir tveggja til þriggja mánaða lokun umfram venjulegar sumarleyfislokanir. Það þýðir þó ekki að fólki verði sagt upp, þótt fyrirtækin verði lokuð lengri hluta úr árinu.“

Fram kemur í tölum Hagstofunnar að fyrir áratug voru konur í nokkrum meirihluta fiskvinnslufólks en nú eru karlar fleiri. Konum í greininni hefur fækkað um 3.000 á meðan körlum fækkar um ríflega 2.000.

Þá starfar megnið af fiskvinnslufólki utan höfuðborgarsvæðisins, en þar hefur því fækkað um 4.400 á áratug. Ekki liggja fyrir upplýsingar um skiptingu starfa eftir landsvæðum eða uppruna fiskvinnslufólks.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×