Viðskipti innlent

Lárus tekur við forstjórastóli í Glitni

Lárus Welding, nýráðinn forstjóri Glitnis.
Lárus Welding, nýráðinn forstjóri Glitnis. Mynd/Stefán

Lárus Welding hefur verið ráðinn forstjóri Glitnis. Hann tekur við starfinu af Bjarna Ármannssyni sem hefur gegnt starfi forstjóra í 10 ár. Lárus Welding hefur verið framkvæmdastjóri Landsbanka Íslands í Lundúnum frá 2003 en hann hóf starfsferil sinn innan bankakerfisins á fyrirtækjasviði Fjárfestingarbanka atvinnulífsins árið 1999. Fjárfestingarbankinn rann saman við Íslandsbanka árið 2000 og heitir nú Glitnir.

Í tilkynningu frá Glitni segir að sem forstjóri Glitnis muni Lárus, sem er þrítugur að aldri, bera ábyrgð á að fylgja eftir stefnumörkun bankans og leiða um 1.900 manna starfslið í 10 löndum.

Á fyrsta fundi nýrrar stjórnar Glitnis var ákveðið að Þorsteinn M. Jónsson, formaður stjórnar kókverksmiðjunnar Vífilfells, yrði stjórnarformaður og Jón Sigurðsson, aðstoðarforstjóri Fl Group, varaformaður.

Markaðsvirði Glitnis við lok 1. ársfjórðungs 2007 var um 400 milljarðar íslenskra króna og heildareignir um 2.200 milljarðar króna.

Á næstu dögum munu Lárus Welding og Bjarni Ármannsson heimsækja starfsstöðvar Glitnis og hitta starfsfólk auk þess að heimsækja matsfyrirtæki, greiningaraðila og fjölmiðla.

Lárus Welding er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands, löggiltur verðbréfamiðlari og með próf í fjármálum frá UK Securities Institute í Bretlandi. Lárus hóf störf hjá Landsbanka Íslands í Lundúnum árið 2003 og hefur leitt uppbyggingu á starfsemi bankans þar. Meðal verkefna hans má nefna stjórnun á sérhæfðum lánateymum í Bretlandi og Hollandi auk starfsmanna í Þýskalandi og Bandaríkjunum. Lárus hefur einnig tekið þátt uppbyggingu á innlánastarfsemi bankans í Bretlandi.

Landsbankinn hefur þegar tilkynnt um eftirmann Lárusar Weldings í Lundúnum. Baldvin Valtýsson hefur tekið við sem yfirmaður útibús Landsbankans í London, segir í tilkynningu bankans.

Lárus starfaði hjá JHR endurskoðunarskrifstofu 1997-1999, hjá Seðlabanka Íslands 1998 og Fjárfestingabanka atvinnulífsins, FBA, síðar Íslandsbanka-FBA, árin 1999-2003. Lárus er giftur Ágústu Ólafsdóttur og eiga þau tvær dætur, sjö ára og eins árs.

Tilkynning um forstjóraskiptin í Kauphöll Íslands





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×