Viðskipti innlent

Mojito í fyrsta sæti hjá báðum kynjum

Jón Aðalsteinn Bergsveinsson skrifar
Guffi galdrar fram einn ferskan mojito. Vinsælasti drykkurinn á börum bæjarins er rommdrykkurinn Mojito. Guffi á 1919 á heiðurinn af landnámi hans hér.
Guffi galdrar fram einn ferskan mojito. Vinsælasti drykkurinn á börum bæjarins er rommdrykkurinn Mojito. Guffi á 1919 á heiðurinn af landnámi hans hér. Markaðurinn/vilhelm

„Mojito er vinsælastur bæði hjá körlum og konum í dag. En þær vilja samt stundum Cosmopolitan," segir Guðvarður Gíslason, betur þekktur sem Guffi. Þetta er í samræmi við niðurstöður óformlegrar könnunar Markaðarins á vinsælasta drykknum í dag.

Mojito hefur verið þekktur hér á landi í nokkur ár en Guffi á talsvert í landnámi hans: „Þegar ég seldi drykkinn á fyrstu árum Apóteksins botnuðu fáir í honum. Það var ekki fyrr en þegar við opnuðum Mojito-barinn við Austur­völl fyrir nokkrum árum sem salan tók kipp. Hún hefur varla farið niður síðan," segir hann. Guffi ætti að þekkja þetta enda er hann líklegast einn þeirra sem best þekkja drykkjarvenjur landans. Guffi rekur nú veitingahúsið á Hótel Radisson SAS 1919 í miðborg Reykjavíkur.

Af öðrum vinsælum drykkjum segir Guffi vodka blandaðan í orkudrykk hafa sótt í sig veðrið upp á síðkastið þrátt fyrir vafasamar umfjallanir um hann. „Menn eiga það til að verða of hressir þegar þeir drekka hann," segir Guffi. Kampavínskokkteillinn Kir Royal og Remy Martin voru sömuleiðis nefndir á nafn en þeir þykja vinsælir fordrykkir.

Auk Mojito lenti gin í tónik ofarlega á lista í könnuninni. En gin er ekki sama og gin enda bendir Guffi á að fólk geri meiri kröfur til gins nú en áður. Bombay Sapphire og Tanqueray eru þar vinsælustu tegundirnar. „Bombay-ginið er að ná sér á strik. Menn eru tilbúnir að greiða meira fyrir gott gin," segir hann og bætir við að börunum hérlendis hafi að sama skapi fjölgað sem bjóði upp á tónik í litlum flöskum í stað þess að hella nokkrum sinnum úr sömu flöskunni í marga drykki. „Menn eru að fá betra tónik úr þessu. Mun betra en úr dælu eða brúsa," segir Guffi.

Þegar einstaka drykkjum sleppir er vinsælast að drekka rauðvín eða hvítvín með mat. Rauðvín frá Mið-Evrópu eru ofarlega á lista á Vox en í nokkrum tilvikum hvítvín frá Bandaríkjunum og Chile þar og á öðrum stöðum. Domaine Laroche Chablis Vaudevey og Domaine Laroche Chablis Grand Cru Blanchots eru vinsæl á meðal fólks í fjármálageiranum á 101 Hótel í Reykjavík. Flaskan af hvoru tveggja kostar á bilinu átta til ellefu þúsund krónur. „Þeir koma hérna stundum fjórir til fimm strákar og taka saman þrjár flöskur með hamborgara eða lambasteik," segir þjónn á hótelinu. „Síðan fara þeir í vodka og tónik eða annað álíka. Það fer þó allt eftir því hvort fólk kemur í miðri viku eða um helgar hvað það fær sér."





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×