Sport

Jón Arnór með 20 stig

Jón Arnór Stefánsson skoraði 20 stig og gaf 5 stoðsendingar þegar lið hans, Dynamo St. Petersburg, beið lægri hlut fyrir Khimki á heimavelli, 101-114. Dynamo byrjaði betur og leiddi sjö stigum eftir fyrsta fjórðung. Í seinni hálfleik sneru gestirnir leiknum sér í hag og unnu öruggan sigur. Næsti leikur liðsins er annað kvöld gegn gríska liðinu Liraklis í Evrópukeppninni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×