Sport

Grindavík fær nýjan leikmann

Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur gert samning við bandaríska leikmanninn Terrel Taylor og verður hann löglegur gegn ÍR á föstudaginn kemur. Hann kemur í stað Justin Miller sem þurfti frá að hverfa vegna veikinda í fjölskyldunni. Þá hefur kvennaliði Grindvíkinga bæst liðstyrkur en Myriah Spence, sem lék með Old Dominion háskólanum í Bandaríkjunum mun leika sinn fyrsta leik með Grindavíkurstúlkum á miðvikudaginn þegar þær heimsækja hinn erfiða heimavöll Keflvíkinga.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×