Tíska og hönnun

Donatella í meðferð

Fatahönnuðurinn Donatella Versace hefur verið lögð inn á meðferðarstofnun. Donatella hefur átt við alvarlegt fíkniefnavandamál að stríða og mun reyna að greiða úr kókaínfíkn sinni inn á stofnuninni. Að sögn vina Donatellu hefur hún barist við fíkniefnavandann í mörg ár. Margir frægir einstaklingar hafa sent Donatellu sínar bestu óskir um skjótan bata enda þekkir hún alla í bransanum. Söngkonan Christina Aquilera sendi til dæmis blóm og kort til Donatellu til að styrkja hana á þessum erfiða tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×