Tíska og hönnun

Flottustu leggirnir

Kylie Minouge er ekki aðeins með flottasta rassinn í bransanum heldur er hún líka með flottustu leggina, ef marka má nýja skoðanakönnun. Þó Kylie sé ekki há í loftinu þá náði hún að mala Cameron Diaz, sem var í öðru sæti, og Jennifer Ellison sem var í því þriðja. Aðrir sem lentu ofarlega voru Anna Kournikova, Nicole Kidman, Kate Moss og Naomi Campell. David Beckham var efstur af strákunum en Brad Pitt, Johnny Wilkinson og Orlando Bloom fylgdu honum fast á eftir. Framkvæmdaraðili könnuninnar var fyrirtækið Gilette sem er frægast fyrir sína hárbeittu rakvélar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×