Menning

Bestu kaupin í kassavínum

Í nýjasta hefti Gestgjafans fjallar Þorri Hreinsson vínrýnir um kassavín og er niðurstaðan af úttekt hans að hvítvínið Gruntrum Riesling séu bestu kaupin í kassavínum í Vínbúðum hérlendis. Þorri mælir með víninu einu og sér, með léttum fiskréttum og austurlenskum mat. Þýski vínframleiðandinn Louis Guntrum hefur aflað sér orðstís fyrir vel gerð og áreiðanleg vín á góðu verði. Hvítvín hans hafa um árabil verið með þeim vinsælustu á Íslandi. Einn þekktasti vínblaðamaður Bretlands, Oz Clarke, gefur Guntrum þrjár stjörnur í yfirliti sínu yfir víngerðarmenn veraldar og telur hann til helstu víngerðarmanna Þýskalands. Verð í Vínbúðum 2.790 kr.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×