Golf

Fyrsti titill Rory í 16 mánuði

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rory létt með bikarinn í gær.
Rory létt með bikarinn í gær. vísir/getty
Þungu fargi var létt af Rory McIlroy í gær er hann vann loksins mót á PGA-mótaröðinni.

Norður-Írinn var búinn að bíða í 16 mánuði eftir sigri en hann hafði það loksins á Deutsche Bank-meistaramótinu í gær.

Hann var sex höggum á eftir efsta manni fyrir lokadaginn en frábær lokadagur upp á 65 högg gerði gæfumuninn fyrir McIlroy sem vann með tveggja högga mun.

Þessi sigur kemur aðeins viku eftir að hann skipti um pútter sem og um púttþjálfara.

„Það var mjög ánægjulegt að vera efstur og vonandi get ég haldið svona áfram,“ sagði Rory kátur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×