Fyrsti sjónvarpsfréttamaður Íslands kveður 31. ágúst 2012 23:30
Fyrsti sjónvarpsfréttamaðurinn sem birtist í íslensku sjónvarpi, Magnús Bjarnfreðsson, er látinn, 78 ára að aldri. Hann lést í gær 30. ágúst, á líknardeild Landsspítalans í Kópavogi, eftir langvarandi veikindi. Magnús Bjarnfreðsson og Markús Örn Antonsson voru fyrstu fréttamennirnir sem ráðnir voru til Ríkisútvarpsins Sjónvarps og það var Magnús sem flutti fyrstu íslensku sjónvarpsfréttirnar að kvöldi þann 30. september árið 1966 og varð um leið einn af heimilisvinum landsmanna. Röddin var þá þegar orðin þjóðþekkt en Magnús hafði áður starfað sem útvarpsþulur og hafði einnig mikla reynslu sem blaðamaður, á Fálkanum, Frjálsri þjóð og Tímanum. Magnús hætti í sjónvarpsfréttum þegar hann gerðist bæjarfulltrúi í Kópavogi árið 1974 og starfaði hin seinni ár að almannatengslum. Magnús var fæddur 9. febrúar 1934 á Efri-Steinsmýri í Meðallandi í Vestur-Skaftafellssýslu. Hann var sonur hjónanna Bjarnfreðar Ingimundarsonar og Ingibjargar Sigurbergsdóttir en ólst upp hjá fósturforeldrum sínum, þeim Páli Pálssyni og Magneu Magnúsdóttur í Efri-Vík í Landbroti. Hann var einn af 21 systkini og var sá sextándi í röðinni. Meðal systkina hans var Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, verkalýðsforingi og alþingismaður. Magnús lætur eftir sig eiginkonu, Guðrúnu Árnadóttur og fjögur börn; Guðjón fæddan 1960, Árna 1965, Pál 1971 og Ingibjörgu 1973.
Mest lesið Dómur Hæstaréttar í kosningamáli góðar fréttir fyrir Trump Erlent Kvíðir vetrinum framundan Innlent Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Innlent „Eiginlega bara óforskammað“ Innlent Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Innlent Leita áfram í fyrramálið Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Innlent „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Innlent Eðlilegt að hafa áhyggjur Innlent Fleiri fréttir Loðnumjöl nýtt sem áburður á gulrætur Kvíðir vetrinum framundan Lítur ummæli Ólafs Ragnars alvarlegum augum Leita áfram í fyrramálið „Eiginlega bara óforskammað“ Eðlilegt að hafa áhyggjur Leit enn í fullum gangi og hátt í hundrað á svæðinu Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Sjá meira