Körfubolti

Fyrsti og fjórði leikhluti lögðu grunninn að sigri Polkowice

Anton Ingi Leifsson skrifar
vísir/daníel
Helena Sverrisdóttir spilaði í rúmar sextán mínútur þegar lið hennar CCC Polkowice vann Energa Torun í pólska körfuboltanum í dag.

Leikurinn var fyrsti leikur liðanna í rimmu, en þetta er leikur um þriðja sætið í pólsku úrvalsdeildinni.

Helena og félagar byrjuðu virkilega vel og unnu fyrsta leikhlutann 21-8. Þær duttu hins vegar niður í öðrum leikhlutanum og töpuðu honum 26-13.

Þær slátruðu svo fjórða leikhlutanum þar sem gestirnir fengu einungis á sig þrjú stig. Lokatölur 69-53, Polkowice í vil.

Helena skoraði fimm stig, tók þrjú fráköst og gaf tvær stoðsendingar.

Næsti leikur liðanna fer fram á miðvikudag, en Helena og félagar léku á útivelli í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×