Glamour

Fyrsti karlkyns talsmaður Maybelline kynntur

Ritstjórn skrifar
Bloggarar og vinsælir Instagram notendur eru orðnir eitt af helstu viðfangsefnum snyrtivöru og tískufyrirtækja þegar það kemur að markaðssetningu. Í gær tilkynnti Maybelline að þeir hafi fengið förðunarbloggarann Manny MUA eða Manny Gutierrez sem nýtt andlit fyrirtækisins. 

Maybelline stígur því í fótspor Cover Girl sem fékk förðunarbloggarann James Charles sem andlit sitt seinasta sumar. Loksins er umræðan um stráka sem hafa áhuga á förðun að opnast sem og mun meiri fjölbreytni í slíkum auglýsingaherferðum.






×