Innlent

Fundu tugi kílóa af sterkum efnum í bíl

Nadine Guðrún Yaghi skrifar
Bifreiðin kom hingað til lands með Norrænu 22. september síðastliðinn.
Bifreiðin kom hingað til lands með Norrænu 22. september síðastliðinn.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lagði hald á tugi kílóa af sterkum fíkniefnum sem fundust í bifreið síðastliðinn mánudag. Bifreiðin kom hingað til lands með Norrænu 22. september síðastliðinn.

Fjórir einstaklingar sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Tveir þeirra eru Íslendingar og tveir Hollendingar og eru þeir á þrítugs og fertugsaldri.

Aldís Hilmarsdóttir aðstoðaryfirlögregluþjónn R-2 fíkniefnamál og skipulögð glæpastarfsemi Stefán Ei
„Þetta er mjög stórt mál á íslenskum mælikvarða en rannsóknin gengur vel,“ segir Aldís Hilmarsdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, um málið. Hún bætir við að ekki sé hægt að veita upplýsingar um hvaða efni ræði né magn þeirra. Hins vegar sé um mikið magn fíkniefna að ræða. Þá segir Aldís að efnagreining hafi farið fram og að rannsókn málsins sé í fullum gangi.

Þrír einstaklinganna voru úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald og einn þeirra í viku. Hæstiréttur hefur staðfest alla úrskurðina.

Þetta er þriðja stóra fíkniefnamálið sem komið hefur upp á Íslandi á stuttum tíma. Tollverðir á Seyðisfirði fundu 80 kílógrömm af MDMA í húsbíl sem kom einnig með Norrænu til Seyðisfjarðar í byrjun september síðastliðins. Fundust efnin í niðursuðudósum, varadekki bifreiðarinnar sem þau grunuðu voru á og tveimur gaskútum. Hollenskt par situr nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Bæði málin eru með stærstu fíkniefnamálum sem komið hafa upp hér á landi. Þá voru hollenskar mæðgur stöðvaðar með tæplega tuttugu kíló af fíkniefnum í Leifsstöð um páskana.

„Það er mikið áhyggjuefni hversu mikið magn virðist flæða hér inn í landið en að sama skapi ánægjulegt að vita að lögregla og tollur séu að ná árangri í að hindra flæðið að einhverju leyti,“ segir Aldís.

Uppfært klukkan 12:36

Mennirnir voru úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald en ekki þriggja eins og stóð í fyrstu útgáfu fréttarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×