Innlent

Fréttamenn styðja við bakið á fráfarandi fréttastjóra

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/gva
Fréttamenn RÚV lýsa yfir fullu trausti á Óðinn Jónsson, fráfarandi fréttastjóra, og störf hans á fréttastofunni og telja ótímabært að skipta um fréttastjóra núna. Þetta var samþykkt á fundi fréttamanna RÚV sem lauk nú fyrir skömmu.

Húsnæðismál RÚV komu til tals og skipuð hefur verið nefnd til að finna lausn á húsnæðismálum en Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóri, telur hús Ríkisútvarpsins allt of dýrt í rekstri og segir það hefta alla þeirra starfsemi.

„Hann nefndi að verðum við áfram í Efstaleitinu muni starfsemin öll flytjast á eina hæð og yrði hin þá leigð út,“ segir Hallgrímur Indriðason, formaður Félags fréttamanna á Rúv, í samtali við Vísi. Vísaði hann í upplýsingar frá Magnúsi Geir sem þó sat ekki fundinn með fréttamönnum í kvöld.

„Það verða breytingar, en hvenær þær verða er ekki ljóst og síður hverjar þær verða,“ segir Hallgrímur jafnframt.

Hvernig er andrúmloftið á vinnustaðnum?

„Það er blendið. Menn eru orðnir þreyttir á að það sé endalaust rót á starfseminni, endalausar breytingar og uppsagnir, skiplagsbreytingar fram og til baka. Núna vilja menn fara að sjá einhverja ró koma yfir starfsemina svo þeir geti einbeitt sér að því sem þeir eru að gera.“


Tengdar fréttir

Uppsagnirnar komu flatt upp á starfsmenn RÚV

„Við héldum fyrst að þetta væri fundur um fjármálin,“ segir Hallgrímur Indriðason, formaður Félags fréttamanna og fréttamaður Ríkisútvarpsins.

Magnús Geir ætlar sér að standast pólitískan þrýsting

Í viðtali við nýjan útvarpsstjóra kemur fram að hann ætlar að snúa taprekstri Ríkisútvarpsins við, hann vill losna við Útvarpshúsið úr rekstrinum og telur að stofnunin hafi mátt sitja undir gagnrýni sem er alveg út í hött.

Stjórn RÚV bregst við taprekstri

Eftirfylgni skorti með niðurskurðaraðgerðum síðasta árs hjá Ríkisútvarpinu. Útvarpsstjóraskipti eru sögð hafa sett strik í reikninginn. Á þessu ári stefnir í 357 milljóna króna taprekstur. Eiginfjárhlutfall fer undir mörk í lánasamningum.

Magnús Geir rak framkvæmdastjórn RÚV

Nýr útvarpsstjóri, Magnús Geir Þórðarson, kynnti starfsfólki RÚV í morgun áherslur sínar og stefnu í rekstri Ríkisútvarpsins og skipulagsbreytingar til að styðja við þær áherslur en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá RÚV. Nýjar stöður framkvæmdastjórnar RÚV verða auglýstar lausar til umsóknar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×