Skoðun

Frelsi til tjáningar á Feneyjatvíæringnum

Njörður Sigurjónsson og Guðni Tómasson skrifar

Feneyjatvíæringurinn á Ítalíu er um margt sérstakur viðburður í menningarsamskiptum þjóða heims, með yfir 100 ára sögu. Þar er þjóðríkjum boðið að senda fulltrúa sína til þess að sýna það helsta sem er að gerast í myndlist á hverjum tíma. Það þýðir ekki að listamaðurinn þurfi að hafa vegabréf frá því landi sem hann er fulltrúi fyrir en áhugaverð þróun hefur einmitt átt sér stað á síðustu áratugum þar sem þjóðir hafa einmitt valið listamenn frá öðrum stöðum og svæðum og grafið þannig undan hugmyndinni um ætlað þjóðerni listarinnar.



Nú bregður svo við að framlagi Íslands til 56. Feneyjatvíæringsins, sem er innsetning listamannsins Christophs Büchel í kyrfilega „afhelguðu“ húsi í Cannaregio-hverfinu í Feneyjum, hefur verið lokað. Ástæða lokunarinnar virðist vera hrein og bein ritskoðun en verkið rímar illa við kreddur stjórnmálamanna og skriffinna í Feneyjum.



Listaverkið, sem er moska, hefur vakið mikla jákvæða athygli í erlendum fjölmiðlum, og hafa einhverjir þekktustu listgagnrýnendur heims hlaðið það lofi. Verkið vekur upp spurningar um samskipti menningarheima og hver er velkominn hvar. Athyglin sem það hefur vakið, og öfgafull viðbrögð borgaryfirvalda í Feneyjum, undirstrika mikilvægi verksins – að það sé sýnt og um það sé talað. Þessi meinlausa innsetning er nefnilega listaverk í öllum venjulegum skilningi þess orðs og eins hefðbundið og þau gerast í samtímanum.



Láti í sér heyra

Í ljósi atburða er einkar mikilvægt að mennta- og menningarmálaráðuneytið láti í sér heyra og vinni að því að framlag Íslands til Feneyjatvíæringsins 2015 verði opið almenningi. Íslensk stjórnvöld verða að standa með rétti listamannsins til þess að tjá sig. Hvar eru einnig samtök myndlistarmanna og fjölmiðlamanna sem stundum standa svo einarðlega með málfrelsinu? Má ekki spyrja gagnrýnna spurninga um það hvernig ólíkir menningarheimar takast á í samtímanum og benda á það hvernig hægt er að auka skilning og samhygð milli manna?



Látum það ekki spyrjast út að við látum slíkt óréttlæti og forneskjulegt afturhald yfir okkur ganga. Verjum tjáningarfrelsi listamanna og Moskuna í Feneyjum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Er þetta eðli­legt?

Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir skrifar

Sjá meira


×