Innlent

Framkvæmd hlerana verði formlega tekin til rannsóknar

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari Vísir/ANTON
Dómsmálaráðherra hefur ritað stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis bréf, „í framhaldi af því að athygli ráðuneytisins hefur verið vakin á fullyrðingum um að framkvæmd símahlustunar við rannsókn sakamála og eftirlit með þeim kunni að vera ábótavant.“

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ráðuneytisins en Vísir og Fréttablaðið hafa að undanförnu fjallað ítarlega um símahleranir ríkissaksóknara. Umfjöllunina má nálgast hér að neðan.

Er lagt í hendur nefndarinnar að meta hvort ástæða sé til athugunar á téðum fullyrðingum á vettvangi nefndarinnar. Undir bréfið skrifar Eygló Harðardóttir sem nú gegnir embættinu fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson dómsmálaráherra.

Þá hefur ráðherra einnig ritað réttarfarsnefnd í framhaldi af erindi tveggja lögmanna þar sem gerð er grein fyrir ýmsum atriðum er að betur mega fara að þeirra mati við meðferð sakamála. Varða þær ábendingar meðal annars samskipti lögmanna og verjenda, framsetningu dóma í sakamálum, símahlustanir, húsleit og sönnunarbyrði.

Þá segir í tilkynningunni að ráðuneytinu hafi einnig borist ályktun stjórnar Lögmannafélags Íslands varðandi samskipti verjenda og vitna. Óskar ráðherra eftir að réttarfarsnefnd taki framangreint  til skoðunar og telji nefndin ástæðu til breytinga á lögum vegna þeirra athugasemda sem þar koma fram óskar ráðherra eftir að nefndin komi með tillögur að slíkum breytingum.

Þá fer ráðherra þess á leit við réttarfarsnefnd að hún taki sérstaklega til skoðunar ákvæði laga um meðferð sakamála er varða símahlustun og hvort ástæða sé til að gera breytingar á ákvæðum er varða skilyrði fyrir símahlustun sem og hvernig staðið skuli að eftirliti með slíkum aðgerðum. Telji nefndin rétt að breytingar verði gerðar á lögunum er þess óskað að nefndin sendi ráðuneytinu tillögur sínar að breytingum.


Tengdar fréttir

Segist fylgjast betur með símhlerunum

Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir að embætti ríkissaksóknara fylgist betur með símhlerunum núna en eftirlitið hafi ekki verið til staðar áður.

Vill svör um hleranir

Tveir þingmenn Pírata hafa lagt fram fjölmargar spurningar sem snúa að rannsóknum á einstaklingum

Ríkissaksóknari verður að skýra afstöðu sína

Jónas Þór Guðmundsson, formaður Lögmannafélagsins sagði í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að ríkissaksóknari yrði að skýra afstöðu sína í málinu, og hvað hann hefði fengið upplýst í greinargerð Jóns Óttars frá 2012 þar sem hann lýsir hinum ólöglegu hlerunum. Lögmenn hafi lengi haft áhyggjur af slíkum hlerunum.

Svarar ekki hvers vegna hleranir voru ekki rannsakaðar fyrr

Ríkissaksóknari svarar því ekki í yfirlýsingu um meðferð rannsóknargagna hjá embætti sérstaks saksóknara hvers vegna embætti ríkissaksóknara hafi ekki fylgt eftir ábendingu um hleranir á símtölum verjenda og sakborninga fyrr á árinu 2012. Fyrrverandi lögreglumaður upplýsti um hleranirnar í greinargerð til embættisins þegar hann var sjálfur til rannsóknar.

Hunsar ósk um fund um hleranir lögreglu

Formaður Lögmannafélags Íslands fagnar því að ráðherra láti skoða hvort rétt sé staðið að hlerunum við rannsókn sakamála.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×