Handbolti

Frá Berlín til Eyja

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sandra skrifaði undir samninginn við ÍBV í VIP herbergi Füchse Berlin.
Sandra skrifaði undir samninginn við ÍBV í VIP herbergi Füchse Berlin. mynd/íbv
Handboltakonan efnilega Sandra Erlingsdóttir hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV.

Sandra, sem er 17 ára, kemur til ÍBV frá Füchse Berlin en faðir hennar, Erlingur Richardsson, er þjálfari karlaliðs félagsins.

Sandra, sem hefur leikið með unglingalandsliðum Íslands, lék með Füchse Berlin í vetur en liðið hafnaði í 10. sæti efstu deildar.

Foreldrar Söndru, áðurnefndur Erlingur Richardsson og Vigdís Sigurðardóttir, léku bæði með ÍBV á sínum tíma.

ÍBV hafnaði í 6. sæti í Olís-deild kvenna á nýafstöðnu tímabili og féll úr leik fyrir Fram í fyrstu umferð úrslitakeppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×