Golf

Fowler búinn að ná McIlroy

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Frábær Fowler
Frábær Fowler vísir/getty
Bandaríkjamaðurinn Rickie Fowler hefur leikið frábært golf í dag á opna breska meistaramótinu á Royal Liverpool golfvellinum á Englandi. Fowler er nú jafn Rory McIlroy á toppnum.

McIlroy var sex höggum á undan Fowler þegar hann hóf leik í morgun en Fowler hefur leikið holurnar 13 til þessa á sex undir pari. Á sama tíma er McIlroy og parinu í dag.

Sergio Garcia er þriðji, þremur höggum á eftir efstu mönnum eftir þrettán holur en mótið er í beinni útsendingu á Golfstöðinni.

Tiger Woods er einn undir pari í dag og einn yfir samanlagt en hann hefur leikið 12 holur í dag. Woods hóf leik á 10. holu vallarins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×