Viðskipti erlent

Forstjóri Mozilla segir af sér

Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar
Firefox er vinsæll vafri sem kemur úr smiðju Mozilla.
Firefox er vinsæll vafri sem kemur úr smiðju Mozilla. Vísir/AFP
Brendan Eich stígur til hliðar sem forstjóri Mozilla. Eich var forstjóri fyrirtækisins í rúma viku, en stöðuskipunin var gagnrýnd harðlega á veraldarvefnum vegna skoðana Eich á samkynhneigð. BBC segir frá þessu.

Eins og kom fram í frétt Vísis um efnið hafði ákvörðunin sætt mikillar gagnrýni meðal starfsmanna Mozilla, en sérstaklega af hendi stefnumótasíðunnar OKCupid, sem hvatti notendur til að hætta að nota vafrann Firefox sem er forrit Mozilla.

Ástæðan var sú að Eich styrkti kalifornísku lagabreytingatillöguna Proposition 8 um þúsund Bandaríkjadali, eða um 112 þúsund íslenskra króna. Tillagan miðaði að því að skilgreina hjónaband sem aðeins milli karls og konu, en hún var felld árið 2010 á grundvelli þess að vera í mótsögn við stjórnarskrá Bandaríkjanna.

Stjórnarformaður Mozilla, Mitchell Baker, tilkynnti ákvörðunina í bloggfærslu.

„Mozilla stærir sig af því að hafa alltaf staðist ákveðna staðla umfram aðra, en í síðustu viku mistókst okkur það," sagði Baker. „Við vitum af hverju fólk er sárt og reitt, og það hefur rétt fyrir sér. Það er vegna þess að við höfum ekki verið sjálfum okkur samkvæm." 

Eich hefur einnig fallist á það að segja sig frá stjórn Mozilla Foundation, stofnunarinnar sem rekur Mozilla Corporation.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×