Viðskipti erlent

Forbes selt til Kína

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Steve Forbes mun halda áfram sem stjórnarformaður og aðalritstjóri.
Steve Forbes mun halda áfram sem stjórnarformaður og aðalritstjóri.
Forsvarsmenn fjölmiðlaveldisins Forbes Media hafa tilkynnt að meirihluti fyrirtækisins hefur verið seldur til hóps af alþjóðlegum fjárfestum í Hong Kong. Þetta kemur fram í bloggfærsluSteve Forbes sem birt var í gær.

Forbes hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar í 97 ár en hún segist enn munu eiga mikilvægan hlut í félaginu.

Steve Forbes mun halda áfram sem stjórnarformaður og aðalritstjóri. „Þrátt fyrir að þessi dagur sé vendipunktur hjá þessu 97 ára félagi sem afi minn stofnaði, á að líta á hann sem tækifæri til að halda áfram og styrkja okkur,“ segir Forbes í bloggfærslunni.

Forbes, sem nær til 75 milljón manna um allan heim mánaðarlega í gegnum alla miðla sína byrjaði að leita að fjárfestum í nóvember. Kaupverðið er ekki gefið upp.

Höfuðstöðvar félagsins verða áfram í Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×