Innlent

Flugvellir á Egilsstöðum og Akureyri lokaðir vegna ösku

Keflavíkurflugvöllur og Reykjavíkurflugvöllur eru opnir.
Keflavíkurflugvöllur og Reykjavíkurflugvöllur eru opnir.
Keflavíkur- og Reykjavíkurflugvellir verða opnaðir á ný klukkan átta, en þeim og flugvöllunum á Egilsstöðum og Akureyri var lokað klukkan ellefu i gærkvöldi vegna ösku í háloftunum.

Egilstaða- og Akureyrarflugvellir eru lokaðir en ekki liggur fyrir hvenær þeir verða opnaðir aftur.

Ein vél frá Icelandair og tvær frá Iceland Express komust ekki til landsins fyrir lokun í gærkvöldi.

Seinkun verður á brottför nlkurra véla frá Keflavík, en þær byrja að fara í loftið á níunda tímanum. Í innanlandsfluginu er enn óvissa um flug til Egilsstaða og Akureyrar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×