Erlent

Flugritarnir afhentir malasískum stjórnvöldum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/afp
Flugritarnir tveir úr malasísku vélinni sem fórst í austurhluta Úkraínu síðastliðinn fimmtudag verða afhentir malasískum stjórnvöldum í dag. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Najjb Razak, forsætisráðherra Malasíu.

Þrátt fyrir að fjórir dagar séu liðnir frá því að farþegavélin var skotin niður, með þeim afleiðingum að 298 létust, hefur eiginleg rannsókn á atburðinum ekki farið fram en í yfirlýsingunni segir að aðstæður á vettvangi hafi verið erfiðar og því hafi ekki verið hægt að hefja rannsókn samstundis. Samningaviðræður hafi þó staðið yfir og samningur sé nú í höfn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×