Innlent

Flugmenn brugðust ekki rétt við

Gissur Sigurðsson skrifar
Mynd/Hilmar Bragi/Víkurfréttir
Gangtruflanir og mannleg mistök eru orsakir þess að tveir menn fórust þegar lítil fis flugvél hrapaði til jarðar á Reykjanesi fyrir tveimur árum, að mati Rannsóknarnefndar samgönguslysa.

Þann 20. október árið 2012 héldu kennari og nemandi í kennsluflug á fisi frá fisflugvellinum Sléttunni á Reykjanesi, en eftir aðeins þriggja mínútna flug ofreis fisið í 700 feta hæð, snérist á hægri vænginn og fór svo í spuna, eða spinni til jarðar.

Niðurstaða nefndarinnar er að ný eldsneytisleiðsla til hreyfilsins hafi laskast við ísetningu og eldsneyti hafa annaðhvort tekið að leka út, eða loft að dragast inn í leiðsluna og þar með hreyfilinn, þannig að hann hafi misst afl. Í stað þess að beina nefi vélarinnar strax niður á við hafi þeir haldið því uppi, líkt og í klifri, uns vélin ofreis. Eftir það hafi vélin farið í spuna.

Þegar þar var komið hafi þeir ekki beitt stjórntækjum rétt til að ná fisinu út úr spunanum og svífa því til lendingar, og því hafi það nánast hrapað til jarðar. 700 feta hæð yfir sjávarmáli, sem fisið var komið upp í, hefði átt að vera nægjanleg hæð til að ná stjórn á því.

„Ekki er hægt að útiloka að reynsluleysi fisflugskennarans á þessa tegund fisa hafi orðið til þess að hann vanmat ofriseiginleika fissins, með þeim afleiðingum að hann greip ekki inn áður en fisið fór í bratt ofris. Ennfremur gæti það hafa verið meðverkandi þáttur við ofrisið að fisið var yfir leyfilegum hámarksmassa,“ segir í skýrslunni.

Í ljósi þessa gerir nefndin fjórar tilllögur sem miða að auknu öryggi í fisflugi.

Að auknar kröfur verði gerðar um þekkingu og vinnubrögð þeirra sem vinna að samsetningu sem og viðhaldi fisa. Þá beinir nefndin því til fisfélagsins Sléttunnar að utanumhald um framgang þjálfunar flugnema verði bætt, að verklegt kennsluflug verði framkvæmt í meiri hæð í skilgreindu æfingarsvæði og að verkleg kennsla við þjálfun á neyðarviðbrögðum verði bætt.

Samantekt Rannsóknarnefndar samgönguslysa má lesa hér og lokaskýrsluna má lesa hér að neðan.

 

Tengdar fréttir

Tveir létust í flugslysi á Suðurnesjum

Lítil fisflugvél brotlenti skammt frá fisflugvellinum Sléttu sunnan við Seltjörn á Njarðvíkurheiði. Tveir menn voru í vélinni og voru þeir báðir úrskurðaðir látnir á vettvangi.

Nöfn mannanna sem létust í flugslysinu

Mennirnir sem létust í flugslysinu á Njarðvíkurheiði þegar fisflugvél brotlenti rétt sunnan við Seltjörn í gær hétu Hans Óli Hansson og Ólafur Felix Haraldsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×