Innlent

Fleygði út tösku fullri af fíkniefnum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Karlmaður á fertugsaldri var handtekinn í Keflavík í gærkvöld eftir að hafa kastað fíkniefnum út um hliðarglugga bifreiðar sem hann ók. Maðurinn, sem var án ökuréttinda, var stöðvaður við umferðareftirlit. Maðurinn ók nokkurn spöl áður en hann stöðvaði bifreið sína og fleygði hann þá út tösku sem reyndist full af fíkniefnum. Sýnatökur á lögreglustöð sýndu fram á að maðurinn hafði neytt amfetamíns og metamfetamíns.

Í þessari viku hafa fimm ökumenn verið teknir til sýnatöku á Suðurnesjum og reyndust fjórir þeirra hafa neytt fíkniefna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×