Golf

Fjórir jafnir í forystu eftir fyrsta hring á McGladrey Classic

Erik Compton deilir efsta sætinu eftir fyrsta hring.
Erik Compton deilir efsta sætinu eftir fyrsta hring. AP
Fjórir kylfingar deila efsta sætinu á McGladrey Classic mótinu sem fram fer á Seaside vellinum í Georgíufylki en það eru þeir Brian Harman, Michael Thompson, Will Mackenzie og Erik Compton sem allir léku fyrsta hring á fimm höggum undir pari.

Átta kylfingar eru jafnir í fimmta sæti á fjórum höggum undir pari en meðal þeirra eru nokkrir nýliðar á PGA-mótaröðinni sem nú láta ljós sitt skína á meðan að þekktustu kylfingarnir eru margir í fríi þessa dagana.

Það eru þó nokkur stór nöfn skráð til leiks um helgina en þar má helst nefna Webb Simpson, Camilo Villegas og Matt Kuchar sem léku fyrsta hring á þremur höggum undir pari. Þá eru þeir Zach Johnson, Davis Love og Padraig Harrington allir á einu höggi yfir pari.

Tilþrif dagsins átti Bandaríkjamaðurinn Mark Anderson en hann fór holu í höggi á þriðju holu sem er 190 metra löng.

McGladrey classic verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni alla helgina og hefst útsending frá öðrum hring klukkan 18:00 á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×