Erlent

Fjórir fjallgöngumenn látnir í Noregi

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Norsk björgunarþyrla.
Norsk björgunarþyrla. vísir/afp
Fjórir fjallgöngumenn fundust látnir í Sunndalsfjöllum í Noregi í morgun en þeirra hafði verið saknað síðan á mánudag. Mennirnir fundust á kafi í fönn og talið er að snjóflóð hafi fallið á þá.

Leitarskilyrði voru slæm í gær og mikil snjóflóðahætta á svæðinu. Taldar voru litlar líkur á að mennirnir hefðu lifað af. Skilyrði bötnuðu í morgun og fundust þrír mannanna eftir skamma leit, og sá fjórði nokkru síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×