Innlent

Fjöldahjálparstöðvar opnaðar

Mynd/Skarphéðinn Þráinsson
Búið er að opna fjöldahjálparstöðvar í félagsheimilinu á Klaustri og Hofgarði fyrir þá sem treysta sér til að fara á þá staði. Íbúar á svæðinu eru hvattir til að hafa samband við nágranna sína og veita hver öðrum stuðning, að því er fram kemur í tilkynningu frá almannavörnum. Búið er að virkja hjálparsíma RKÍ 1717.

Mikið öskufall er á svæðinu frá Mýrdalssandi og austur fyrir Freysnes í Öræfum. Þjóðvegur 1, um Skeiðarársand, er lokaður frá Kirkjubæjarklaustri að Freysnesi. Ekkert ferðafæri er á svæðinu þar sem öskufallið er mest og ekkert skyggni er til gosstöðvanna. Þeim sem ekki eiga brýnt erindi á svæðið er bent á að vera ekki á ferðinni.

Ekki er talin ástæða til að rýma svæðið en íbúar og þeir ferðamenn sem þegar eru á svæðinu hvattir til að halda sig innadyra og vera ekki á ferðinni að nauðsynjalausu. Þeir sem þurfa að vera úti eru hvattir til að nota rykgrímur og hlífðargleraugu.

Þá kemur fram í tilkynningu almannavarna að verið sé að vinna í að koma rykgrímum og hlífðargleraugum til þeirra sem eru á svæðinu en það gengur hægt vegna aðstæðna á vettvangi.

Aukafréttatími verður á Stöð 2 á slaginu klukkan tólf á hádegi vegna eldgossins.


Tengdar fréttir

Öllu flugi innanlands aflýst

Allt flug Flugfélagsins Ernis fellur niður í dag vegna eldgossins í Grímsvötnum. Fara átti tvær ferðir til Eyja, og eina á Höfn, Bíldudal og Sauðárkrók. Með félaginu áttu bókað úm 150 manns, að fram kemur í tilkynningu.

Sjáðu myndirnar - eldgos í Grimsvötnum

Visi hefur borist fjölda mynda af eldgosinu í Grímsvötnum. Það er með ólíkindum að sjá breytingarnar á meðfylgjandi myndum sem Friðrik Páll Friðriksson ljósmyndari tók á Fosshótelum í Skaftafelli. Fyrri myndin er tekin 21. maí klukkan 20:20 og síðari 22. maí, snemma morguns klukkan 07:03. Þá má einnig sjá myndir eftir Vilhelm Gunnarsson ljósmyndara, Egil Aðalsteinsson kvikmyndatökumann, Magnús Kristinsson frá Nónvörðu í Keflavík og íbúa í Vatnsendahverfi.

Gosið sást greinilega frá Reykjavík

Gosið úr Grímsvötnum sást greinilega víða á landinu í gærkvöld. Meðal annars í Reykjavík. Sveinn Þorsteinsson, lesandi Vísis, var staddur í Öskjuhlíð í gærkvöld og tók þá þessa mynd af gosmekkinum.

Almannavarnir hafa mestar áhyggjur af öskufallinu

"Við höfum þessa bitru reynslu úr Eyjafjallajökli hvernig þetta getur verið og staðið jafnvel lengi yfir og haft mikil áhrif á fólkið,“ segir Víðir Reynisson, deildarstjóri hjá almannavörnum. Hann segir mikið öskufall vera í kringum Kirkjubæjarklaustur, bæði vestur út á Mýrdalssand og austur á Skeiðarársand. Þjóðveginum er lokað frá Kirkjubæjarklaustri að Freysnesi.

Keflavíkurflugvelli lokað klukkan hálfníu

Keflavíkurflugvelli verður lokað kl. 08:30. Sú lokun er byggð á spá frá bresku veðurstofunni. Þetta segir í tilkynningu frá almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra.

Kraftur gossins svipaður

"Það gæti verið að það sé hægt að draga úr kraftinum en þetta er svipað. Hann er sennilega ekki að aukast,“ segir Einar Kjartansson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofunni, um eldgosið í Grímsvötnum sem hófst í gær. Óvíst er hvort gosið komi til með að valda hlaupi.

Keflavíkurflugvöllur opinn til sjö

Keflavíkurflugvöllur verður opinn fram til klukkan sjö og þá verður staðan metin að nýju. Sama gildir um innanlandsflug. Staðan fyrir daginn verður svo metin aftur eftir það. Þetta kemur fram í stöðuskýrslu sem almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra sendi frá sér nú í nótt. Eldgos hófst í Grímsvötnum um klukkan sjö í gærkvöld og var samhæfingamiðstöðin í Skógarhlíð samstundis virkjuð vegna hennar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×