Viðskipti innlent

Fjárfestir frá Sviss kaupir hlut í Omnom Chocolate

Haraldur Guðmundsson skrifar
Súkkulaði Omnom er nú fáanlegt í 17 löndum.
Súkkulaði Omnom er nú fáanlegt í 17 löndum. Vísir/Valli
Svissneska fjárfestingafélagið Quadia, sem hefur aðsetur í Genf, hefur keypt tólf prósenta hlut, og samið um kauprétt á 18 prósentum til viðbótar, í íslenska súkkulaðiframleiðandanum Omnom Chocolate. Ef Quadia nýtir sér kaupréttinn verður félagið annar stærsti hluthafi Omnom en stofnandi svissneska félagsins, Eric Christian Archembau, hefur þegar tekið sæti í þriggja manna stjórn íslenska fyrirtækisins.

Þetta staðfestir Óskar Þórðarson, framkvæmdastjóri og einn stofnenda Omnom Chocolate, í samtali við Markaðinn og segir kaupverðið trúnaðarmál. Quadia rekur skrifstofu í London og sérhæfir sig að sögn Óskars í fjárfestingum í sjálfbærri matvælaframleiðslu og umhverfisvænni orku.

„Þetta mun hjálpa félaginu að ná sínum markmiðum á innlendum og erlendum mörkuðum. Quadia mun hjálpa okkur mikið í öflun hrávöru til framleiðslunnar. Svo eru gríðarlegar tengingar, þegar við förum að þurfa þess, varðandi dreifingu og sölu. Þeir höfðu trú á okkar sýn og vörumerkinu. Omnom er í miklum vexti og með Quadia erum við að fá gríðarlega reynslu frá fjárfestingarhópi, sem sérhæfir sig í að fjárfesta og vinna með félögum sem hafa umhverfisvernd, sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð að leiðarljósi,“ segir Óskar.

Omnom var stofnað árið 2013 og opnaði verksmiðju og verslun úti á Granda í júlí í fyrra. Óskar og Kjartan Gíslason, súkkulaðigerðarmeistari og stjórnarformaður Omnom, mynda hluthafahóp félagsins ásamt Quadia. Súkkulaði þess er að sögn Óskars selt í yfir 500 verslunum í 17 löndum. Samkvæmt skráningu Omnom hjá fyrirtækjaskrá Ríkisskattstjóra (RSK) var félagaformi þess breytt úr einkahlutafélagi í hlutafélag á sama tíma og Eric Christian varð stjórnarmaður.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×