Lífið

Fimmtíu fyrstu fá fría hamborgaramáltíð

Stefán Árni Pálsson skrifar
Helgi Björns og Salka Sól mæta á svæðið.
Helgi Björns og Salka Sól mæta á svæðið. vísir
Fimmtíu fyrstu viðskiptavinir Roadhouse fá fría hamborgaraveislu í hádeginu í dag en þá verður nýr hamborgari The Great Gatsby kynntur til sögunnar.

Borgarinn samanstendur meðal annars af handgerðum grilluðum nautaborgara, rjómasoðnum villisveppum, bökuðum cherrytómutum, langtímaelduðum skarlottulauk í andarfitu og Roadhouse Mayo.

Einn heppinn getur unnið 50.000 króna gjafabréf í Herrafataverslun Kormáks og Skjaldar. Söngvararnir Helgi Björns og Salka Sól taka einnig nokkur lög en dagskráin hefst klukkan 11:30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×