Handbolti

Fimm dagar í næsta leik og enn enginn landsliðsþjálfari

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Geir Sveinsson var síðast þjálfari Magdeburg í Þýskalandi og hefur verið orðaður við landsliðsþjálfarastarfið.
Geir Sveinsson var síðast þjálfari Magdeburg í Þýskalandi og hefur verið orðaður við landsliðsþjálfarastarfið. Fréttablaðið/getty
Þrátt fyrir að Ísland spili landsleik í handbolta á sunnudaginn hefur eftirmaður Arons Kristjánssonar, sem hætti eftir slæmt gengi strákanna okkar á EM í Póllandi, ekki verið fundinn.

Guðmundur B. Ólafsson, formaður HSÍ, hefur haldið spilunum þétt að sér eins og áður hefur komið fram og gerir það enn. Hann vildi ekkert segja þegar Fréttablaðið ræddi við hann í gær, hvort HSÍ ætti í viðræðum við einn þjálfara eða fleiri, íslenskan eða erlendan.

„Þetta skýrist mjög fljótlega,“ sagði Guðmundur sem heldur enn í vonina um að nýr þjálfari muni stýra íslenska landsliðinu í Ósló á sunnudag en Ísland mætir Norðmönnum í tveimur vináttulandsleikjum 3. og 5. apríl.

Sjá einnig: Ætla að finna nýjan landsliðsþjálfara í þessum mánuði

„Ég vona að nýr þjálfari verði á hliðarlínunni í Noregi en get þó ekkert fullyrt um það. Það var alltaf áætlunin að klára þessi mál fyrir leikina í Noregi og það stendur enn til,“ bætti formaðurinn við en leit hans að nýjum þjálfara hefur staðið yfir síðan Aron steig til hliðar þann 22. janúar.

Landsliðið mun halda hópinn áfram út vikuna eftir síðari leikinn gegn Noregi og undirbúa mikilvæga landsleiki gegn Portúgal í júní í undankeppni HM 2017 í Frakklandi. Leikirnir fara fram 12. og 16. júní og ræðst þá hvort Ísland verði með í sinni átjándu heimsmeistarakeppni eða missi af sinni fyrstu keppni síðan 2009.

Sjá einnig: Óskar Bjarni er tilbúinn að þjálfa landsliðið en ekki Gunnar

Geir Sveinsson þykir samkvæmt óstaðfestum heimildum Fréttablaðsins helst koma til greina sem nýr landsliðsþjálfari en hann hefur ekki viljað veita viðtal um málið þegar eftir því hefur verið leitað. Kristján Arason er einnig orðaður við starfið, sem og Óskar Bjarni Óskarsson. Eins og Fréttablaðið greindi frá í síðustu viku hafnaði hinn sænski Ljubomir Vranjes, þjálfari Flensburg í Þýskalandi, starfstilboði HSÍ fyrr í vetur.


Tengdar fréttir

Ljubomir Vranjes hafnaði HSÍ

Leitin að landsliðsþjálfara Íslands í handknattleik stendur enn yfir. Svíinn Ljubomir Vranjes gaf frá sér möguleikann á að taka við liðinu samkvæmt heimildum. Tíminn tifar viðurkennir formaður HSÍ.

Ætla að finna nýjan landsliðsþjálfara í þessum mánuði

Formaður HSÍ, Guðmundur B. Ólafsson, hefur engar áhyggjur þó svo ekki sé búið að finna arftaka Arons Kristjánssonar sem hætti í janúar. Ekki virðist vera búið að ræða við neinn þjálfara um að taka að sér starfið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×