Formúla 1

Ferrari sýnir mátt sinn á föstudagsæfingum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Vettel sýndi mátt Ferrari í dag.
Vettel sýndi mátt Ferrari í dag. Vísir/Getty
Sebastian Vettel á Ferrari var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir spænska Formúlu 1 kappaksturinn. Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á seinni æfingunni. Ferrari virðist nær Mercedes en áður á tímabilinu.

Vettel var fljótastur á fyrri æfingunni, liðsfélagi hans Kimi Raikkonen var annar. Mercedes setti mjúku dekkin ekki undir. Rosberg og Lewis Hamilton voru rúmlega hálfri sekúndu á eftir Vettel, á milli-hörðu dekkjunum.

Daniel Ricciardo stóðst pressuna frá nýja liðsfélaganum, Max Verstappen. Ricciardo var tveimur tíundu á undan Verstappen.

Sjá einnig: Kvyat tapar sæti sínu til Verstappen.

Dagarnir lagast ekki mikið hjá Daniil Kvyat sem var færður frá Red Bull til Toro Rosso fyrir þessa keppni. Hann var um hálfri sekúndu hægari en Carlos Sainz, liðsfélagi hans hjá Toro Rosso.

 

Heimamaðurinn, Carlos Sainz hafði ýmislegt að sanna í dag. Hann kom skilaboðunum alla leið.Vísir/Getty
Rosberg kom Mercedes svo á toppinn á seinni æfingunni. Raikkonen var þó ekki langt undan á Ferrari bílnum. Hamilton var þriðji og Vettel fjórði.

Sainz bætti um betur frá fyrri æfingunni og var fljótari en báðir Red Bull bílarnir og Kvyat. Sainz varð fimmti rúmlega sekúndu á eftir Rosberg. Hann vill greinilega sýna að hann hefði átt á fá tækifæri hjá Red Bull í stað Verstappen.

Jolyon Palmer og Esteban Ocon á Renault, lentu báðir í því að sprengja dekk. Ocon er varaökumaður Renault og var að fá að spreyta sig á fyrri æfingunni í bíl Kevin Magnussen. Magnussen var í bílnum á seinni æfingunni.

Bein útsending frá tímatökunni á Spáni hefst klukkan 11:50 á morgun á Stöð 2 Sport. Bein útsending frá keppninni hefst svo klukkan 11:30 á sunnudag á Stöð 2 Sport.

Hér fyrir neðan má sjá úrslit æfinganna. 


Tengdar fréttir

Bílskúrinn: Rosberg einmana í Rússlandi

Nico Rosberg á Mercedes vann sjöttu keppnina í röð í Rússlandi á sunnudag. Hvað var að frétta hjá Lewis Hamilton, hvað var Daniil Kvyat að spá?

Hamilton vill ekki sjá samsæriskenningar

Lewis Hamilton hefur óskað eftir því við aðdáendur sína að þeir hætti samsæriskenningum um að Mercedes liðið sé að hjálpa Nico Rosberg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×