Viðskipti innlent

Fermetraverð lækkaði um 10% frá 2008 til 2011

magnusl@frettabladid.is skrifar
Ari Skúlason
Ari Skúlason
Fermetraverð húsnæðis á höfuðborgarsvæðinu lækkaði í öllum hverfum frá 2008 til 2011, í kjölfar bankahrunsins. Talsverður munur er þó á því hve mikið fermetraverðið lækkaði en verðlækkunin er á bilinu 2 til 16%. Þetta leiða í ljós talnagögn sem hagfræðideild Landsbankans birti í Hagsjá í síðustu viku.

Ari Skúlason, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir helstu niðurstöðu nýju gagnanna vera þá að gróin hverfi og hverfi nálægt miðborginni hafi staðið niðursveifluna best af sér.

„Það vekur þó einnig athygli í þessum gögnum minnkandi áhugi á miðborginni. Það var mikil stemning fyrir henni á uppgangstímanum og mikil áform til staðar um uppbyggingu enda hækkaði fermetraverð hvergi meira. Áhuginn virðist hins vegar hafa dalað svolítið," segir Ari.

Ari segir þó vert að hafa í huga hver kaupendahópur íbúða í sérstökum hverfum er. Þannig sé áhugahópurinn um miðborgina mestmegnis ungt fólk að kaupa sína fyrstu íbúð. „Þessi hópur hefur ekki sama aðgang að lánum og áður auk þess sem eiginfjárkröfur eru hærri þannig að það gæti verið ein skýring á minni áhuga á miðborginni," segir Ari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×