Lífið

Fékk nóg af leti unglinganna

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Hinn breski Will Reid fékk sig fullsaddan af leti táningsbarna sinna og greip til sinna ráða.

Will var búinn að sýna börnum sínum ítrekað hvernig ætti að skipta um klósettpappírsrúllu en allt kom fyrir ekki - þau skiptu aldrei um rúllu.

Will fékk því þá hugmynd að taka upp kennslumyndband fyrir börnin sín og setti það á netið.

„Ég sagði í gríni við börnin mín að ég myndi birta þetta víðar ef þau byrjuðu ekki að ganga frá eftir sig. Þau sögðu mér að gera það þar sem þetta væri ekki fyndið og myndi ekki vekja áhuga neins,“ segir Will í samtali við Storyful.

Börnin hans höfðu svo sannarlega ekki rétt fyrir sér og hefur kennslumyndbandið, sem sjá má hér fyrir neðan, vakið gríðarlega lukku á netinu og hefur það verið skoðað um milljón sinnum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×