Viðskipti innlent

Farice hækkar verð á nettengingu við umheiminn

BBI skrifar
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans.
Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans. Mynd/Arnþór
Síminn hefur náð þriggja ára samningum við Farice ehf. um fjarskiptasamband við útlönd, en síðarnefnda fyrirtækið heldur úti tveimur sæstrengjum sem tengja Ísland við umheiminn. Forstjóri Símans segir að samningarnir feli í sér umtalsverðar kostnaðarhækkarnir fyrir Símann.

Til þess að Síminn geti boðið upp á internetþjónustu hér á landi er mikilvægt fyrir fyrirtækið að hafa aðgang að umræddum sæstrengjum. „Þess vegna var mjög mikilvægt að ganga frá samningum við Farice sem tryggir viðskiptavinum okkar öruggt samband við önnur lönd," segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans.

Síðasti þjónustusamningur Farice ehf. við Símann rann út nú í haust en Farice hafði áður boðað næstum því þrefalda verðhækkun á þjónustu sinni. Aðilarnir hafa setið við samningaborðið síðan í vor en samningar tókust nú nýverið.

Sævar getur ekki gefið upp hversu mikið þjónustan hækkar í verði. „En ég get staðfest að þetta felur í sér umtalsverðar kostnaðarhækkanir fyrir Símann," segir Sævar.

Spurður hvort þessi kostnaðarhækkun Símans muni skila sér í hærri verðlagningu á netþjónustu fyrir almenning segir Sævar það enn ekki hafa verið ákveðið. „Á þessu stigi höfum við ekki tekið ákvörðun um verðlagningu fyrir almenning."

Farice ehf. heldur úti tveimur sæstrengjum hér við land. Þar fyrir utan liggja til landsins tveir aðrir strengir. Annars vegar gamall sæstrengur, nefndur Cantat-3, en flutningsgeta hans er lítil miðað við hina og hins vegar Greenland-connect strengurinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×