Innlent

Fara ekki fram á farbann yfir skipverjanum sem verður sleppt

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mennirnir eru báðir skipverjar á togaranum Polar Nanoq. Þeir voru handteknir um borð fyrir rúmum tveimur vikum.
Mennirnir eru báðir skipverjar á togaranum Polar Nanoq. Þeir voru handteknir um borð fyrir rúmum tveimur vikum. Vísir/Anton Brink
Lögreglan mun ekki fara fram á farbann  yfir skipverjanum sem þeir sleppa úr gæsluvarðhaldi í dag en maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi í tvær vikur, grunaður um að bera ábyrgð á dauða Birnu Brjánsdóttur sem hvarf aðfaranótt laugardagsins 14. janúar og fannst látin átta dögum síðar í fjörunni við Selvogsvita.

Þrátt fyrir að hvorki sé farið fram á áframhaldandi gæsluvarðhald  yfir manninum né farbann, en hann er grænlenskur, hefur hann enn réttarstöðu grunaðs manns í málinu.

Aðspurður hvers vegna ekki sé farið fram á farbann yfir honum segir Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókn málsins, að mat lögreglu hafi verið að ekki sé þörf á því.

Lögreglan mun hins vegar fara fram á áframhaldandi tveggja vikna gæsluvarðhald yfir hinum manninum sem einnig er grunaður í málinu og er farið fram á að hann sæti enn einangrun.

„Hlutdeild hvors um sig hefur skýrst töluvert og þetta er niðurstaðan,“ segir Grímur í samtali við Vísi.

Mennirnir tveir, sem báðir eru skipverjar á grænlenska togaranum Polar Nanoq, hafa setið í gæsluvarðhaldi og sætt einangrun í tvær vikur.

Unnsteinn Elvarsson, verjandi mannsins sem verður sleppt úr haldi í dag, vill ekki tjá sig um málið við fréttastofu að öðru leyti en því að einangrunin hafi reynst skjólstæðingi sínum erfið og hann muni mögulega aldrei jafna sig á henni.


Tengdar fréttir

Öðrum skipverjanum sleppt úr haldi

Lögreglan mun ekki fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir báðum skipverjunum sem grunaðir eru um að bera ábyrgð á dauða Birnu Brjánsdóttur, heldur aðeins öðrum þeirra.

Mál Birnu Brjánsdóttur vekur heimsathygli

Fjölmiðlar úti í heimi hafa mikinn áhuga á máli Birnu Brjánsdóttur. Kynningarfulltrúi lögreglunnar hefur ekki kynnst jafn viðamiklum áhuga. Oftast er dregið fram að á Ísland sé friðsælt, hér sé enginn her og lögreglan gangi um óvop




Fleiri fréttir

Sjá meira


×