Stefanía Guðmundsdóttir bakar á hverju ári piparkökur sem eru bæði bragðgóðar og einkar fagrar. Hún deildi leyndarmálinu með lesendum jólablaðs Fréttablaðsins.
Stefanía Guðmundsdóttur er mikið jólabarn og finnst tilheyra að baka til jólanna. „Ég baka fimm til sex sortir," segir Stefanía sem sér þó fram á heldur meiri bakstur í desember í ár en vanalega því að frumburðurinn Sigrún Helga verður eins árs á Þorláksmessu.
Uppskriftin sem Stefanía deilir með lesendum er að piparkökum með brjóstsykri í sem líta fallega út, nánast eins og í þeim miðjum sé steint gler. Ekki svíkur bragðið, það er dásamlegt. Stefanía segir einfalt mál að baka kökurnar, lykillinn sé að baka piparkökurnar aðeins áður en brjóstsykurinn er settur í gatið, annars myndist í þeim loftbólur.
En hvernig skyldi hugmyndin að kökunum góðu hafa komið til? „Vinkona mín var að tala um að strákurinn hennar hefði gert svona kökur í leikskólanum, þannig að ég tók mig til og prófaði og það gekk vel."
Þó að jólin séu í uppáhaldi hjá Stefaníu er hún ekki á því að hafa undirbúninginn allt of langan, hún setur upp seríur í glugga í desember en skreytir jólatréð á Þorláksmessu, við undirleik jólakveðja Ríkisútvarpsins.
„Almennt má segja að mér finnist smákökur, malt, appelsín og laufabrauð algjörlega nauðsynlegt í desember, að hitta fólk, baka og taka það rólega. Ég er hins vegar ekki mjög hlynnt jólastressi, vil hafa huggulegheit og kósí jólastemningu."
Stefanía gefur, auk venjulegrar uppskriftar, uppskrift að heilsusamlegu tilbrigði við smákökurnar.