Fagnar niðurstöðu um Bitruvirkjun en harma að ákvörðun sé ekki bindandi 19. maí 2008 15:55 Bergur Sigurðsson MYND/GVA
Landvernd fagnar þeirri niðurstöðu Skipulagsstofnunar að bygging Bitruvirkjunar á Hengilssvæðinu sé ekki ásættanleg vegna verulegra neikvæðra og óafturkræfra áhrifa á landslag, útivist og ferðaþjónustu. Hins vegar harma samtökin að álit stofnunarinnar sé ekki bindandi fyrir sveitarstjórnir. Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar, segir aðspurður að um ákveðinn áfangasigur sé að ræða en álitið sé ekki bindandi. „Þarna er staðfesting á því að þeir sem hafa talað gegn virkjuninni hafa haft mikið til síns máls," segir Bergur. Áður fyrr kvað Skipulagsstofnun upp úrskurð sem var bindandi en með lagabreytingum gefur stofnunin nú aðeins álit sem ekki er bindandi. Bergur bendir á að þótt álitið sé leiðbeinandi þurfi aðilar að færa fyrir því rök ef þeir gangi gegn því. Hann bendir á að Skipulagsstofnun hafi fyrir nokkrum misserum lagst gegn malartöku í Ingólfsfjalli en Sveitarfélagið Ölfuss engu að síður veitt framkvæmdaleyfi. „Röksemdarfærslan var að mínu mati afar bágborin og það eru ekki gerðar nægilega ríkar kröfur til rökstuðnings þegar gengið er gegn áliti Skipulagsstofnunar," segir Bergur. Bergur vonast til að þetta dugi til þess að sveitarstjórn Ölfuss sjái að sér. Ef það veiti hins vegar framkvæmdaleyfi sé sú ákvörðun kæranleg til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála.
Mest lesið Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Innlent Þetta fær Hildur í laun Innlent Sonur krónprinsessunnar dæmdur í fjögurra ára fangelsi Erlent „Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu” Innlent Trump enn ekki svarað fundarbeiðni Kristrúnar Innlent Þrír handteknir og einn á spítala vegna stunguárásar Innlent Samþykkja 3,5 prósenta launahækkun Innlent Vopnað rán í Reykjavík Innlent Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Erlent Staðfesta að samkomulag hafi náðst: Íran fagnar og segir Trump hafa gefist upp Erlent Fleiri fréttir Þórdís Lóa ráðin framkvæmdastjóri Félagsbústaða Hvetja fólk til að gerast gjafar: „Það er alltaf pláss fyrir fleiri gæðablóð“ „Við getum ekki framkvæmt rauneftirlit á dagvinnutíma“ Baráttan um 17. júní Samþykkja 3,5 prósenta launahækkun Þetta fær Hildur í laun Vill sjá reglur um samfélagsmiðla sem fyrst „Ég skil ekki að það séu ekki fleiri áhyggjufullir yfir þessu” Íslenskar vefsíður í vandræðum vegna bilunar í ljósleiðarakerfinu „Í góðu lagi að gefa henni orðið núna“ Engin þörf á aukaþingi í ágúst og veitingamenn ósáttir með vinnubrögð lögreglu Trump enn ekki svarað fundarbeiðni Kristrúnar Rændur á víðavangi vegna fíkniefnaskuldar Hefja borun rannsóknarholu á Landeyjasandi í vikunni Þrír handteknir og einn á spítala vegna stunguárásar Sjöunda björgunarskipið komið til heimahafnar Þingmenn á síðustu metrunum Vopnað rán í Reykjavík Göngutúr við HR endaði í Landsrétti Segir upptöku evrunnar geta leitt til aukins atvinnuleysis Óskiljanlegt að ráðuneytið skoði bara stöðu námsgagna í stærðfræði Voru komnir með sína eigin dyraverði þegar lögregluna bar að garði Árekstur á Kársnesi Laus úr sjálfheldu eftir um fimm tíma strand Vill samfélagssáttmála vegna tómstundaiðkunar barna Hákarlaárás og fyrrverandi varaformaður Viðreisnar vonsvikinn Um 400 skjálftar hafa mælst í þéttri hrinu Sagnfræðirannsóknir, upptaka evru, menntakerfið og málefni barna Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Sjá meira
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“