Innlent

Fagnaðarfundir þegar Felix, Hnoðri og Mylla voru sótt til dýralæknis

Lilly Valgerður Pétursdóttir skrifar
Heimiliskettir í Reykjanesbæ áttu þátt í því að móðir og eins árs dóttir hennar sluppu ómeiddar þegar eldur kviknaði í íbúð fjölskyldunnar í morgun. Reykskynjari í íbúðinni virkaði ekki en klór kattanna á svefnherbergishurðina varð til þess að móðirin varð eldsins vör.

Það var rétt fyrir klukkan tíu í morgun sem Erla Arnadóttir var að svæfa dóttur sína Snædísi inni í herbergi á heimili þeirra á Ásbrú.

„Svo byrjar kötturinn minn að klóra í hurðina og væla, sem er frekar ólíkt henni,“ segir Erla. „Ég opna dyrnar og þá kemur bara reykur á móti okkur. Ég átta mig á því að það er búið að kvikna í og hleyp út með stelpuna.“

Þær Erla og Snædís sluppu ómeiddar en heimiliskettirnir þrír urðu eftir inni í íbúðinni. Slökkviliðið og lögregla voru strax kölluð til. Reykkafarar fundu svo kettina inni í svefnherbergi illa farna. Þeir björguðu þeim öllum þremur út um glugga.

Kettirnir þrír, þeir Felix, Hnoðri og Mylla, voru fluttir á Dýralæknastofu Suðurnesja þar sem hlúð var að þeim og þeim gefið súrefni. Þrátt fyrir að hafa verið nær dauða en lífi þegar slökkviliðið bjargaði þeim voru þeir allir að koma til þegar Erla kom síðdegis til að sækja þá.

Það voru fagnaðarfundir þegar Erla hitti kettina sína en hún er sannfærð um að þeir hafi átt þátt í því að þær mæðgur sluppu ómeiddar úr íbúðinni.

Svo virðist sem eldurinn hafi kviknað út frá potti á eldvélinni en Erla hafði verið að sjóða pela áður en hún fór að svæfa dóttur sína. Nokkuð tjón varð af brunanum og segir Erla að það hafi verið mikið áfall þegar hún áttaði sig á því að kviknað var í.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×